VETRARHLÉDRAG með konum í náttúrunni // 21. - 23. nóv
VETRARHLÉDRAG með konum í náttúrunni // 21. - 23. nóv
VETRARHLÉDRAG með konum í náttúrunni // 21. - 23. nóv
VETRARHLÉDRAG með konum í náttúrunni // 21. - 23. nóv
  • Load image into Gallery viewer, VETRARHLÉDRAG með konum í náttúrunni // 21. - 23. nóv
  • Load image into Gallery viewer, VETRARHLÉDRAG með konum í náttúrunni // 21. - 23. nóv
  • Load image into Gallery viewer, VETRARHLÉDRAG með konum í náttúrunni // 21. - 23. nóv
  • Load image into Gallery viewer, VETRARHLÉDRAG með konum í náttúrunni // 21. - 23. nóv

VETRARHLÉDRAG með konum í náttúrunni // 21. - 23. nóv

Regular price
30.000 kr
Sale price
30.000 kr
Regular price
Sold out
Unit price
per 
Tax included.

VETRARHLÉDRAG með konum í náttúrunni í Samskara Retreat Center, Varmagerði Selfossi.

Lára & María bjóða konum í þriggja daga hlédrag og náttúruævintýri. Rými til þess að endurtengjast, hvílast, tæma sig. Og þaðan, opna sig inn í veturinn. Tengjast náttúrunni, og hitanum sem býr í landinu okkar, jarðhitinn, vatnið, þegar veturinn fer að umlykja okkur með kulda og kalla okkur heim.

Að tengjast okkur sjálfum, okkar innri leiðarvísi inn í veturinn. Rými til þess að finna gjafir vetrarins og hvað hann býður hverju og einu okkar inn í. Í djúpri hlustun við hjartað, við líkamann, við innri viskuna.

INNIFALIÐ:

2 nætur í gistingu.
Heilnæmt grænmetisfæði.
Kakóathafnir.
Eldathöfn

Boðið upp á morguniðkun, jóga nidra, djúpslökun, tónheilun, söng, náttúruferðir og draumferðir.

Dagskráin hefst með athöfn kl. 12.00 á föstudeginum og lýkur kl. 15.30 á sunnudeginum. 

Gist er í tveggja kvenna herbergjum. Aðeins 10 pláss í boði. 

Verð: 89.000 // Snemmskráningsgjald 79.000 sé staðfestingargjald greitt fyrir 13 okt.
Staðfestingagjald: 30.000.- 

Við bjóðum upp á að skipta greiðslu sé þess óskað. Fyrir skiptingu sendið póst á moar@moarstudio.is.

Lára er eigandi Móa, jógakennari, tónlistarkona & kynjafræðingur með menntun í fornfræði (sjamanisma) & höfuðbeina- & spjaldhryggsjöfnun. 

María er dansari, sjúkraþjálfari,  jóga nidra kennari & doula með menntun í höfuðbeina- & spjaldhryggsjöfnun og elskar að halda rými fyrir fólk að dýpka tengslin við sig sjálft, náttúruna & lífið. 

KONUR í náttúrunni er lifandi viðburðaröð sem slær í takt við árstíðir & náttúru landsins: Serimóníur,  ævintýri úti í móa, í nánd við jörðina & fossana, svitahof & sjóböð, í nærandi samveru með konum, ræktandi innri tengingu, frelsi & sambandið við jörðina. Hugmyndin kviknaði árið 2022 hjá Maríu Carrasco & Láru Rúnarsdóttur og hafa þær haldið úti ýmsum formum af viðburðum, ævintýrum & námskeiðum með konum í náttúrunni.

Láru & Maríu dreymir um að skapa heiðarlegt rými þar sem konur geta verið þær sjálfar, þar sem þær geta tímabundið lagt frá sér hlutverkin sín, ferðast nær sér & eflt kynni við sig & aðrar konur. Þar sem þær mega vera glaðar, þreyttar, spenntar, sorgmæddar, hræddar, berskjaldaðar, bjartsýnar. Þar sem við göngumst við líðan okkar, stöðu & tilfinningum & æfingum okkur í að sýna sjálfum okkur og öðrum kærleika, hlustun & virðingu. 

Náttúran sem við sækjum heim er  aðal meðalið, í henni býr allt. Elementin & athafnir þeim tengdum geta innihaldið og fært okkur djúpa heilun svo fremur sem við færum virðingu, þakklæti, hlustun, virði & ásetning inn í það. Svörin sýna sig oft í eldinum, berginu, ánni eða trjástofninum.

Innilega velkomnar <3