
Tungl Ritual með Úu & Láru á nýju tungli þann 28. janúar frá kl. 19.00 - 21.00.
Við hefjum stundina á kakóbolla/tesopa með hugleiðslu & hugvekju um nýja tunglið. Kyrjaðar verða möntrur sem eru taldar áhrifaríkar að kyrja á þessum tíma árs.
Við munum skoða hvaða áhrif þetta nýja tungl hefur á rísanda hvers þátttakanda, það stjörnumerki sem rísandinn situr í. Þannig að við óskum eftir fæðingardegi, tíma og stað hvers þátttakanda.
Lesið er eftir austrænni stjörnupeki (vedískri), sem er kölluð sideral stjörnuspeki og er mörkuð af stjarnfræðilegum útreikningi og reiknar nákvæmlega út hvenær sólin fer inn í hvert stjörnumerki. Það er því smá munur á henni og hinni hefðbundnu vestrænu stjörnuspeki (tropical) sem tekur mið af árstíðunum en ekki eiginlegum stjarnfræðilegum útreikningum. Þessar tvær leiðir stjörnuspekinnar virka vel saman og styðja hvor aðra, þó að staða pláneta breytist töluvert í hinu vedíska störnukorti.
Sigrún Halldóra Gunnarsdóttir/ÚaVon er íslenskur myndlistarmaður, waldorfuppeldisfræðingur, markþjálfi og listkennari. Hún hefur haldið ýmis námskeið sem snúa að meðvitund og sköpun. Hún hefur djúpa tengingu og áhuga á stjörnuspeki og hefur sökkt sér í þessi fræði síðustu ár undir handleiðslu Ástu Óla.
Lára Rúnarsdóttir er eigandi Móa, jógakennari, tónlistarkona og meðferðaraðili.
Verð: 6900.-
Takmarkað pláss í boði.
Viðburðurinn fer fram í MÓUM studio, Bolholti 4, 2.hæð