
Viltu sýna heiminum styrkleika þína?
Viltu njóta þess sem er fullkomið innra með þér?
Viltu bæta samskipti þín við nærumhverfið?
Á námskeiðinu lærum við hvernig tölur geta hjálpað okkur í lífinu. Að spegla okkur út frá sjónarhorni talnaspekinnar til að bæta andlega heilsu. Veltum fyrir okkur hvað felst í því að vera andlegar verur í veraldlegum líkama. Skoðum hvar áskoranir birtast og hvort við getum horft á það sem pirrar okkur eða okkur finnst leiðinlegt út frá nýju sjónarhorni. Æfum okkur í að skoða heiminn sem eina heild í takt við okkur sjálf og virkjum innri kraft í gegnum kundalini jóga.
Mán 3. febrúar frá kl. 19.30-21.30
Grunnur í kundalini yoga og talnaspeki
Mán 10. feb frá kl. 19.30-21.30
Nærandi hreyfing og persónuleg kortlagning með talnaspekinni
Mán 17. feb frá kl. 19.30-21.30
Kröftug hugleiðsla, tölur og innsæi.
Mán 24. feb frá kl. 19.30-21.30
Hvernig nýtist Kundalini Yoga & talnaspeki inn í daglegt líf venjulegs fólks.
Kennari námskeiðisins er Estrid Þorvaldsdóttir. Hún er kundalini yoga kennari (1800 tíma í Level 1 og 2 hjá Kundalini Research Institute) (200 tímar hjá Vikasa Viniasa). Estrid er talnaspekingur frá Karam Kriya school, með level 1 í Jóga Nidra hjá Jógasetrinu auk Child Play barnajóga. Hún er BA gráðu í ítölsku og listfræði og meistaragráðu í Hagnýtri menningarmiðlun.
Verð: 29.900. Innifalið í verði er aðgangur að öllum opnum tímum Móa Studio á meðan á námskeiði stendur.
20% afsláttur fyrir áskriftahafa. 15% afsláttur fyrir fólk með örorku, námsfólk & heldra fólk.