SHAMANIC BREATHWORK með lifandi tónlist // 12. maí

SHAMANIC BREATHWORK með lifandi tónlist // 12. maí

Regular price
11.000 kr
Sale price
11.000 kr
Regular price
Sold out
Unit price
per 
Tax included.

Verið velkomin í Shamanic Breathwork með lifandi tónlist þar sem við fögnum hinum óbeyslaða krafti innra með okkur. Þemað er sjálfvalda, að frelsa sköpunarkraftinn án þess að dæma það sem verður. Þriðjudagskvöldið 12. maí frá kl. 18.30 - 22.00.

Með aðferð Shamanic Breathwork sköpum við rými þar sem tilfinningar eru velkomnar og hver og einn getur mætt sér og því sem undir kraumar á meðvitaðan og kærleiksríkan hátt, til að fá útrás, létti, úrvinnslu og skýrari sýn.

Áróra leiðir ferðalagið ásamt Láru & Arnari sem munu styðja við ferðalagi með trommuslætti, spuna, tónheilun og söng. 

Viðburðurinn er fyrir alla þá sem vilja efla persónulegan og andlegan vöxt, stíga til fulls inn í innri styrk. Fyrir þá sem vilja fá skýrleika og yfirsýn, byggja traust á innsæið og heila gömul áföll. Fyrir þá sem vilja sleppa tökum á hamlandi hugsanamynstrum, sjálfskaðandi hegðun og fíknimunstrum.

Það sem boðið verður upp á:
Kakóathöfn með Áróru og Láru
Opnun raddar með möntrum og söng
Hugleiðsla
Shamanic Breathwork
Tónheilun
Úrvinnsla


Shamanic Breathwork er áhrifarík iðkun þar sem öll tjáning líkamans er velkomin. Með einfaldri en kröftugri hringöndun, og tónlist sem er stillt inn á orkustöðvar líkamans, opnar aðferðin möguleikann fyrir þátttakandann að uppgötva sitt innra landslag með því að opna inn á víðari stig meðvitundarinnar og þar með eigin getu til heilunar og umbreytingar - á andlegu, huglægu, tilfinningalegu og líkamlegu sviði.

Við tengjum við okkar innri visku og sleppum taki af því sem þjónar ekki lengur. Þannig öðlumst við meiri skýrleika og orku, sem veitir aukinn styrk til að taka fullan þátt í lífi okkar á virkan og meðvitaðan hátt.

Sumir hlæja. Sumir gráta. Sumir opna inn í ástand djúprar og umbreytandi hugleiðslu. Upplifun hvers og eins er ólík og hver reynsla er einstök. Í hvert skipti sem þú mætir til leiks tekur ferlið þig nákvæmlega þangað sem þú þarft að fara.

Engin reynsla nauðsynleg. Eina sem þarf til er áhugi og löngun til umbreytinga. Komdu nákvæmlega eins og þú ert.

Verð: 11.000 kr. 

Skráning fer fram hér á síðunni eða í gegnum moar@moarstudio.is

Mikilvægt að mæta tímanlega.

Gott að miða við að borða ekki þunga máltíð 2 klst fyrir viðburð.

 

Klæðnaður og annað til að taka með:

*Mjúkur og þægilegur klæðnaður

*Vatnsbrúsi

*Augngríma (eyemask), ef vill

*Dagbók & penni, ef vill

Um Áróru: 

Ástríða Áróru er að skapa rými fyrir hverja og eina manneskju til að uppgötva sig í öllu sínu veldi, kunna á sinn innri áttavita og geta tjáð sig einlægt og af virðingu, þaðan sem við getum samskapað nærandi og gefandi samfélag.Hún tvinnar saman fjölbreyttan bakgrunn sinn sem náttúrubarn af Vestfjörðum, list-skapari í mótun, heilbrigðisverkfræðingur (MSc, TUDelft Hollandi), vöruhönnuður, yogakennari (200 RYT Ásta Arnardóttur, 300 RYT Julie Martin & Emil Wendel), núvitund og hugleiðsla (Kyrrðarvökur víða um heim í hefð Insight Meditation/Vipassana, lengst 28 dagar á Spirit Rock CA), markþjálfi (Evolvia), yoga nidra leiðbeinandi (Matsyendra), Shamanic Breathwork master practitioner (Venus Rising Association for Transformation), Sacred Sound frá Sri Vidya Tantra hefðinni (Russill Paul) og aðferðafræði sem á rætur í Lucid Body acting technique (Kennedy Brown).

Um Láru:

Lára Rúnarsdóttir er eigandi MÓA studio en draumur hennar er að skapa rými þar sem fólk finnur sig öruggt til þess að sleppa brynju sinni, grímum & vörnum. Að tengja við sitt sanna, einlæga sjálf & mæta öðrum þaðan. Rými þar sem við getum verið séð nákvæmlega þar sem við erum & fagnað því hversu ólík & stórkostleg við erum. Lára er tónlistarkona (Burtfararpróf í klassískum söng, píanó- & gítarnám), meðferðaraðili í höfuðbeina & spjaldhryggjarjöfnun (Upledger á Íslandi). Lára er jógakennari (260 tíma frá Kundalini Research Institute) (150 tímar frá Yoga Light Warriors) & er í 500 tíma námi frá Yoga Reniew í New York. Hún er tónheilari & lærði hjá Saraswati Om (Gong & Sound healing). Lára er líka með menntun í NA-Shamanisma (Otter Dance School of earth medicine) og með meistaragráðu í kynjafræðum frá Háskóla Íslands & B.ed. gráðu í kennslufræðum. Lára hefur gefið út sjö sólóplötur & er tónlist stór partur í hennar kennslu. Lára leggur áherslu á djúp tengsl, sjálfsvirðingu, sjálfsmildi, valdeflingu, söng, spuna & líkamsvirðingu í sinni kennslu.

Um Arnar:

Arnar er annar eigandi MÓA studio, tónlistarmaður & framkvæmdastjóri Hljóðfærahússins. Hann er einn eftirsóttasti trommuleikari landsins og spilar m.a. með Mugison, Jónasi Sig, Dr.Spock & Ensími svo eitthvað sé nefnt. Arnar spilar á slagverk á möntrukvöldum Móa auk þess að styðja við starfið á margvíslegan hátt.