
Vinirnir Jónas Sig & Lára Rúnars bjóða upp á Satsang & Söng í Móum Studio þriðjudagskvöldið 12. desember kl. 20.00. Satsang þýðir samkoma sannleikans. Orðið satsanga er dregið af sanskrít, þar sem 'sat' þýðir "hreinleiki eða sannleikur" og 'sanga' þýðir "í hópi eða félagi". Megintilgangur er að hver geti speglað sig í sannleika þess sem talar frá hjartanu.
Stundin mun innihalda ilmandi súkkulaðibolla, möntrur, Satsang & spjall með Jónasi, flutning Jónasar & Láru á eigin lögum & djúpslökun með tónheilun.
Takmarkað pláss í boði.
Tryggðu þér pláss hér eða sendu póst á moar@moarstudio.is.
Hlökkum mikið til að sjá þig <3