HAUST * ELDATHÖFN
með KONUM í náttúrunni
laugardaginn 5.október 15-17
________________________________________
Hjartanlega velkomnar í athöfn úti í náttúrunni, í litadýrð haustsins:
Eldathöfn & kakóserimónía í skjóli trjánna.
Laugardaginn 5.október kl. 15 hittumst við milli fjalla í Mosfellssveit. Við hefjum ævintýrið á léttri & stuttri göngu að fallegu rjóðri í haustlitadýrð, sitjumst við eldstæðið & tendrum eldinn. Við byrjum á kakóathöfn: Tengjumst hjartanu, hugleiðum, opnum röddina, hlustum á náttúruna, fáum rými til að finna okkur dýpra. Þaðan förum við inn í ritúalið með eldinum, HAUST athöfn.
Viltu vera með? ❤️
verð: 5900
Staðsetning send með tölvupósti vikuna fyrir.
Skráning hér
Með tilhlökkun,
María Carrasco & Móar
________________________________________
María Carrasco leiðir stundina:
María er sjúkraþjálfari, dansari, jóga nidra kennari (Yoga Nidra Network) & doula (Mama Bamba doula & soula), hún er með menntun í höfuðbeina - og spjaldhryggjarmeðferð (Upledger) & tónheilun (Acutonics). Hún hefur mikla ástríðu fyrir því að halda viðburði & serimóníur fyrir fólk að dýpka tengslin við sjálft sig, hvort annað & náttúruna. Þar leggur hún áherslu á að leiða fólk inn á við og efla tenginguna við sig sjálft með hugleiðslu, djúpslökun & hreyfingu. María hefur leitt konuhringi, dans viðburði og serimóníur frá 2018 og starfað í Móum stúdíó frá 2021. Hún heldur utan um og býður upp á viðburðaröðina Konur í Náttúrunni í samstarfi við Móa.
KONUR í náttúrunni er lifandi viðburðaröð sem slær í takt við árstíðir & náttúru landsins: Serimóníur, ævintýri úti í móa, í nánd við jörðina & fossana, svitahof & sjóböð, í nærandi samveru með konum, ræktandi innri tengingu, frelsi & sambandið við jörðina. Hugmyndin kviknaði árið 2022 hjá Maríu Carrasco & Láru Rúnarsdóttur og hafa þær haldið úti ýmsum formum af viðburðum, ævintýrum & námskeiðum með konum í náttúrunni.