
Við vinnum með lífskraftinn þinn, hreinsum til, dýpkum tenginguna og kveikjum á flæði.
Þessir tímar eru öflug blanda af öndun, djúpri slökun, tónlist og orkuvinnu sem styður við úrvinnslu streitu, orkuleysis og ójafnvægis.
Þú liggur á dýnu í öruggu rými, þar sem tónlistin leiðir þig inn í þitt eigið ferðalag að sjálfheilun.
Dregur úr kvíða og bætir svefn
Eykur tengingu, sköpun og vellíðan
Losar spennu og dýpkar innsæi
Margir finna fyrir djúpslökun, tilfinningalosun, titring eða einfaldlega nærandi ró.
Við hefjum tímann á nærandi seremóníal kakóbolla eða Jurtate.
Taktu með: þægilegan fatnað og augngrímu (við eigum einnig til láns).
Vertu hjartanlega velkomin/n – nákvæmlega eins og þú ert.
Bjarmi Fannar leiðir kvöldið en hann kynntist Kundalini-orkuvinnu árið 2019 og lærði KAP hjá Þóru Hlín Friðriksdóttur, stofnanda KAP á Íslandi, og hef síðan þá haldið reglulega tíma og skapað rými fyrir orkuvinnu tengda Kundalini-orkunni. Bjarmi hefur einnig lokið Usui Reiki Level 1 og Level 2 undir handleiðslu Melani Koch á Balí, sem dýpkað hefur tenginguna við orkuvinnu og heilun. Bjarmi leggur áherslu á að skapa öruggt og nærandi rými þar sem þátttakendur geta upplifað innri tengingu, orku, lífskraft og ró á sínum eigin forsendum. .
Tímasetning 20.00 - 22.00