Nidra draumferð er ferðalag þar sem við blöndum saman aðferðum yoga nidra hugleiðslu og trommuferðalags í Shamanic Journey session.
Í þessari draumferð leggjum við áherslu á lífefnið loft. Loft er eitt mikilvægasta efnið fyrir manninn og kemur fram í andardrætti líkamans. Andardrátturinn er það fyrsta sem við tökum og það síðasta sem við gefum frá okkur í þessum líftíma.
Loftið fylgir upphafinu í lífshjólinu og heldur utan um hið huglæga í líkamanum okkar. Hér biðjum við um skýrleika hugans og visku líkamans okkur til handa. Leyfðu huganum að hvílast á meðan hann ferðast með loftinu inn í næstu draumferð.
Loftið hreyfir við orkunni innra með okkur, í umhverfinu okkar og setur af stað ferli breytinga. Við biðjum vinda höfuðáttana um aðstoð og leiðbeiningar um næstu skref. Haustið er fullkominn tími til að biðja loftið um leiðsögn inn í næsta ferli.
Spurningarnar sem við ætlum að spyrja og halda á í gegnum ferðalagið eru þrjár:
-
Hvernig eru hugsanir mínar að þjóna mér?
-
Hvaða sögur er ég að segja sjálfu mér?
-
Hverjar eru væntingar mínar til komandi tíma?
Shamanic journey er áhrifarík trommuleiðsla til þess að komast í djúpt hugleiðsluástand. Í þessu ástandi verður örlítið auðveldara að heyra & skynja framhjá rökhugsun & skvaldri hugans & þannig komast í dýpri samskipti við innri viskuna okkar. Shamanic Journeying hefur verið notað gegnum aldirnar til þess að heila, taka á móti skilaboðum & til þess að öðlast mátt til þess að sjá skýrar & yfirstiga hindranir í lífinu. Í ferðalaginu er talað um að vitundin eigi samskipti við andans heima, leiðbeinendur, máttardýr & kennara.
Ferðalagið er djúpt & skilaboðin geta borist í formi tákna eða myndlíkinga sem munu skýrast með tímanum.
Kristjana leiðir stundina. Kristjana er uppeldis-, menntunar- og fötlunarfræðingur sem hefur lokið námi í stjórnenda markþjálfun. Hún er Reiki meistari og Kundalini heilari. Ásamt því er hún höfuðbeina- og spjaldhryggjameðferðaraðili, með menntun í NA Shamanisma sem og hún er Yin yoga og - Nidra kennari. Jafnvægi og tilfinningar er hennar ástríða og kemur fram í hverju því sem hún tekur sér fyrir hendur. Hvort sem um ræðir heilun, gong slökun, trommuferðalög eða jóga er markmiðið alltaf orkujöfnun og tilfinningalosun.
Gott að mæta með vatnsbrúsa, í þægilegum fötum & með skriffæri & dagbók. Það getur verið mjög gott að skrifa strax niður það sem kemur í gegn.
Verð: 4900
Skráning hér á síðunni eða í gegnum moar@moarstudio.is