Verið innilega velkomin í leidda jóga nidra draumferð þri 11. febrúar frá kl. 20 - 21.30.
Nidra draumferð er ferðalag þar sem við blöndum saman aðferðum yoga nidra hugleiðslu og trommuferðalags í Shamanic Journey session.
Nidra draumferð er ferðalag þar sem við blöndum saman aðferðum yoga nidra hugleiðslu og trommuferðalags í Shamanic Journey session.
Í þessari draumferð leggjum við áherslu á lífefnið jörð. Jörðin er táknræn fyrir hið harða og mjúka í efnisheiminum sem við lifum í sem manneskjur. Hún er náttúrulega efnið sem líkaminn okkar er gerður úr og er tengingin okkar við jörðina. Hér ætlum við að tengjast líkamanum okkar og jörðinni í gegnum innri viskuna og finna tenginguna vaxa og dafna. Við leggjum traust okkar á jörðina og biðjum hana um að losa um líkamlegar hömlur og gefa okkur styrk og mátt inn í það ferðalag sem við erum að hefja.
Spurningarnar og ásetningurinn sem við ætlum að fara með inn í ferðalagið eru þrjár:
- Hver eru mín næstu skref?
- Hvaða reynslu þarf ég sem styður mig í þessu ferli?
- Hvað segir innri viskan mín?
Yoga Nidra þýðir að dreyma vakandi og er leidd hugleiðsla sem tekur okkur inn í heim slökunar milli svefns og vöku. Tilgangurinn er að slaka á líkamanum til að geta sleppt takinu og leitað inn á við. Inn í flæðið og virkja heilun líkamans. Þegar líkaminn nær að slaka förum við yfir í trommuferðalag sem tekur við og viðheldur ástandi líkamans með stöðugum og hröðum tommutakti í við förum í shamanic journey þar sem við förum í ferðalag handan hugans.
Shamanic journey er áhrifarík trommuleiðsla til þess að komast í djúpt hugleiðsluástand. Í þessu ástandi verður örlítið auðveldara að heyra & skynja framhjá rökhugsun & skvaldri hugans & þannig komast í dýpri samskipti við innri viskuna okkar. Shamanic Journeying hefur verið notað gegnum aldirnar til þess að heila, taka á móti skilaboðum & til þess að öðlast mátt til þess að sjá skýrar & yfirstiga hindranir í lífinu. Í ferðalaginu er talað um að vitundin eigi samskipti við andans heima, leiðbeinendur, máttardýr & kennara.
Ferðalagið er djúpt & skilaboðin geta borist í formi tákna eða myndlíkinga sem munu skýrast með tímanum.

Við hefjum stundina á 100% hreinu súkkulaði til að tengjast líkamanum. Súkkulaðið er töframeðal náttúrunnar, hjálpar að opna hjartað & auka næmni & skynjun. Þaðan förum við í yoga nidra hugleiðslu og yfir í trommuferðalag. Við endum síðan stundina á jarðtengingu og tónum.
Kristjana leiðir stundina. Kristjana er uppeldis-, menntunar- og fötlunarfræðingur sem hefur lokið námi í stjórnenda markþjálfun. Hún er Reiki meistari og Kundalini heilari. Ásamt því er hún höfuðbeina- og spjaldhryggjameðferðaraðili, með menntun í NA Shamanisma sem og hún er Yin yoga og - Nidra kennari. Jafnvægi og tilfinningar er hennar ástríða og kemur fram í hverju því sem hún tekur sér fyrir hendur. Hvort sem um ræðir heilun, gong slökun, trommuferðalög eða jóga er markmiðið alltaf orkujöfnun og tilfinningalosun.

Gott að mæta með vatnsbrúsa, í þægilegum fötum & með skriffæri & dagbók. Það getur verið mjög gott að skrifa strax niður það sem kemur í gegn.
Verð: 5900
Skráning hér á síðunni eða í gegnum moar@moarstudio.is