DANSANDI FERÐALAG / 4 vikna námskeið // 8. nóv

DANSANDI FERÐALAG / 4 vikna námskeið // 8. nóv

Regular price
27.900 kr
Sale price
27.900 kr
Regular price
Sold out
Unit price
per 
Tax included.

DANSANDI FERÐALAG // 4 vikna námskeið
8. - 29. nóvember

Kennt á miðvikudögum frá kl. 19:30 - 21:15.
* English below *

Innilega velkomin í dansferðalag þar sem við tengjumst líkamanum & opnum fyrir innri dansarann. Skemmtilegir & lifandi danstímar þar sem mögnuð tónlist leiðir för. Hver tími verður einstök blanda af leiddum æfingum, frjálsu flæði / ecstatic dansi og stuttri djúpslökun.
Hvað þú munt læra á námskeiðinu:

Í gegnum dans munum við kanna hreyfingar líkamans, dýpka líkamsvitundina & upplifa dans sem hugleiðslu. Við munum tengja dansinn við orkustöðvar, elementin & musicality: þegar við leyfum tónlistinni að hreyfa okkur í flæði með mismunandi hljóðfærum og takti. Allt þetta til þess að upplifa meira frelsi, gleði í dansinum, auka tjáningu í gegnum líkamann, finna opnun og ástand flæðis.

Áhrif, tæki & gildi námskeiðsins:

Dansinn hefur fylgt okkur frá upphafi, allir geta dansað og fólk um allan heim á öllum aldri dansar. Og hreyfir við okkur á svo einstakan hátt. Með því að fara inn í dans með formi sem þessu getum við opnað fyrir mögnuð áhrif & töfra dansins:

• Að dansa til að leika, fyrir gleði & innlifun.
• Dans sem listform og tjáning.
• Dans er öflugt form heilunar.
• Dans sem hugleiðsla.
• Tenging við tilfinningar í gegnum dans.
• Dansandi tenging við innsæi & drauma.

Fyrir hvern er þetta námskeið:
Öll eru velkomin! Þau sem eru að opna á dans, að byrja, eða hafa dansað lengi og vilja dýpka sína upplifun.

Um kennarann:
María sérhæfir sig í kvenheilsu og heldur reglulegar serimóníur fyrir konur að dýpka tenginguna við sjálfa sig og náttúruna. Hún er sjúkraþjálfari og hefur yfir 14 ára reynslu af því að stúdera og vinna með líkamann & heilsu á heildrænan hátt. María hefur æft & iðkað dans frá barnsaldri, salsa, social & samkvæmisdansa og ýmis frjáls form af dansi sem form af leiðslu & innri tengingu. Hún hefur kennt dans og haldið dansviðburði frá 2015. Í heilunarlistinni býður hún upp á sína alkemíu sem sjúkraþjálfari, jóga nidra kennari (kennaranám frá Yoga Nidra Network), meðferðaraðili í höfuðbeina - og spjaldhryggjarmeðferð, og tónheilun ( Acutonics). María hefur mikla ástríðu fyrir því að halda serimóníur og dansviðburði fyrir fólk að endurtengjast og kanna sjálft sig, sínar einstöku gjafir & drauma í takt við árstíðirnar og Jörðina.

Verð: 27.900.

Innifalið í verði er aðgangur að öllum opnum tímum Móa á meðan á námskeiði stendur.

20% afsláttur fyrir áskriftahafa // 15% afsláttur fyrir fólk með örorku, námsmenn & heldra fólk. Hafðu samband við moar@moarstudio.is

Tryggðu þér pláss hér á síðunni.

__________________________________________
DANSANDI // Awakening the inner dancer.
A four week course at móar studio.
November 8- 29th.
Wednesdays 19:30-21:15.

Welcome to this magical journey of exploring & enjoying with dancing activations, movement meditations & ecstatic dance. Each session will be a unique blend of guided exercises and free dance flow where the music & rhythm guides and inspires, followed by a gentle relaxation & sound bath at the end.

The intention of the journey:
To dive deep into the dance & our beings with these ways of moving and connecting within - To open up to more freedom, joy & inner connection.

Expanding the inner dancer and receive the magics of the dance - To feel the joy, pleasure & play that dancing can generate. The expression it is, the form of art, the way it can facilitate healing in the body & mind, the meditative & empowering practice it is.

For whom is this course for:
All are welcome - Those who are beginning their dancing journey and people who want to expand their connection with dance or get a fresh inspiration.
Reserve your spot here on the site.